Íslendingar þurfa að skýla sér í húsum sínum meira en flestar aðrara þjóðir. Sumrin eru stutt og jafnvel í hlýjasta mánuði ársins er varla freistandi að borða utandyra á kvöldin. Á veturnar eru birtuskilyrði að trufla okkur við veru okkar og vinnu úti. Vegna legu lands og veðurs erum við því meira inni en gengur og gerist í veröldinni.
Kannski ættum við því að hugsa meira um loftgæði okkar í húsum og á vinnustöðum heldur en við höfum gert hingað til. Ein besta leiðin til að bæta loftið í híbýlum okkar er að rækta þar blóm og jurtir. Hafa blóm í öllum herberjum og síst þar sem við sofum. Því fleiri blóm sem við höfum því líklegra er að þau lifi, því það man enginn eftir að hugsa um eina plöntu. Blóm hreinsa loft, framleiða súrefni og viðhalda rakastigi. Sem sagt við ættum að rækta blómin inni hjá okkur fyrst og fremst vegna loftgæða en ekki vegna þess að þau gera heimilið fallegra.
0 Comments
Leave a Reply. |
Myndirnar mínarEldri innlegg
July 2019
Slóð á straum |